TM gerist aðili að UN Global Compact
TM gerist aðili að UN Global Compact
Í lok árs 2025 gerðist TM aðili að hnattrænum sáttmála Sameinuðu þjóðanna um siðferði og ábyrgð í viðskiptum, UN Global Compact. Aðildin markar mikilvægt skref í áframhaldandi vinnu TM að ábyrgum og sjálfbærum rekstri. Með þessu fylgir TM í fótspor móðurfélags síns, Landsbankans, sem hefur verið aðili að sáttmálanum frá árinu 2006.
Með hnattræna sáttmálanum eru fyrirtæki og stofnanir hvött til ábyrgra starfshátta í þágu samfélagsins, með sjálfbærni að leiðarljósi. Sáttmálinn tók gildi árið 2000 og er í dag eitt helsta viðmið fyrirtækja og stofnana við innleiðingu ábyrgra starfshátta. Um þessar mundir eru yfir 25.000 aðilar að sáttmálanum á heimsvísu, þar af 37 íslensk félög.
Sáttmálinn er ákall til fyrirtækja um að aðlaga rekstur og starfsemi sína að tíu meginmarkmiðum sem skiptast í fjóra flokka: mannréttindi, vinnumarkaðsmál, umhverfismál og varnir gegn spillingu. Með þátttöku í UN Global Compact skuldbindur TM sig til að innleiða þessi tíu meginmarkmið í starfsemi sína. Með því stuðla fyrirtæki ekki aðeins að því að uppfylla grunnskyldur sínar gagnvart fólki og umhverfi, heldur einnig að skapa verðmæti fyrir atvinnulífið og samfélagið og leggja grunn að árangri til lengri tíma.
„Aðildin endurspeglar þá sýn TM að vera ábyrgur þátttakandi í samfélaginu og leggja sitt af mörkum til sjálfbærrar framtíðar, bæði í eigin rekstri og í gegnum þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila,“ segir Birkir Jóhannsson, forstjóri TM.
Nánari upplýsingar um hnattrænan sáttmála Sameinuðu þjóðanna á Íslandi má finna á vef samtakanna.