
Vild Landsbankans
Fyrir viðskiptavini TM
Nýtt vildarkerfi Landsbankans, Vild, veitir þér aðgang að fjölbreyttum fríðindum, betri kjörum og fleiri Aukakrónum. Þar sem TM er hluti af Landsbankanum geta viðskiptavinir TM einnig notið fríðinda í Vild.
Hvernig virkar Vild?
Þú safnar stigum þegar þú nýtir þjónustu Landsbankans. Stigin ráða því í hvaða vildarþrepi þú ert — og eftir því sem þú ferð ofar, færðu meiri fríðindi.
Fjölskylduleið TM gefur þér forskot
Viðskiptavinir í Fjölskylduleið TM fá 3.000 stig í Vild. Það getur hjálpað þér að komast hraðar upp um vildarþrep og opnað á fleiri fríðindi.
Dæmi um fríðindi
- Hærri vextir á sparnaði
- Lægri vextir á nýjum íbúðalánum
- Fleiri Aukakrónur
- Allt að 10% endurgreiðsla á tryggingum hjá TM*
- Aðgangur að velferðartorgi TM*
- Afsláttur af lántökugjaldi íbúðalána
- Hagstæðari sjóðaviðskipti
*Fyrir viðskiptavini í Fjölskylduleið TM.
Auk þess færðu 1% endurgreiðslu í Aukakrónum þegar þú greiðir fyrir tryggingar hjá TM með greiðslukorti sem safnar Aukakrónum.
Sjáðu þína stöðu í appinu
Í appi Landsbankans getur þú séð hvaða vildarþrepi þú ert í, hvaða fríðindi fylgja þínu þrepi og hvernig þú getur safnað fleiri stigum.