7. október 2022

Höfum varann á

Það stefnir í ansi slæmt veður á sunnudaginn, en gefnar hafa verið út veðurviðvaranir víðsvegar um landið. Við hvetjum ykkur til að ganga vel frá lausum hlutum utandyra til þess að koma í veg fyrir slys.

Góð ráð fyrir óveður

  • Ganga vel frá öllu lauslegu utandyra. Festa eða taka inn hluti sem gætu farið á flug, svo sem grill, útihúsgögn og blómapotta.
  • Hreinsa vel frá niðurföllum og rennum, svo vatn eigi greiða leið í ræsi en ekki inn í fasteign.
  • Ganga úr skugga um að gluggar og hurðir séu lokuð kyrfilega.
  • Kynna sér vel veðurspá, halda sig heima og vera ekki á ferðinni að óþörfu.

Hvað geri ég ef ég lendi í tjóni vegna óveðurs?

Neyðarsími vegna tjóna er alltaf opinn í síma 800-6700. Einnig er hægt að tilkynna tjón í appinu eða á vefnum hvenær sem er. Nánar um viðbrögð við tjónum má finna hér.